BÍLstólar fyrir BÖRN frá fæðingu til 12 ára aldurs
Allir bílstólar okkar uppfylla ströngustu öryggiskröfur
Þú skiptir í næsta bílstól þegar þér hentar
Leigja bílstól – öruggir barnabílstólar til leigu
Hjá Bílstólaleigunni getur þú leigt öruggan barnabílstól fyrir börn frá fæðingu til 12 ára. Veldu þann bílstól sem hentar aldri og stærð barnsins.
Algengar spurningar
- Veldu bílstól sem hentar þínu barni
- Pantaðu bílstólinn í gegnum vefsíðu okkar
- Sæktu stólinn til okkar í verslunina Móðurást á Laugavegi 178
- Notaðu hann eins lengi og þú þarft
- Skilaðu honum þegar þú hefur ekki þörf fyrir hann lengur
Við tökum ekkert stofngjald í upphafi samnings.
Afhending og skil á stólum fara fram í Móðurást, Laugavegi 178. Við afhendingu er greidd leiga fyrir fyrsta mánuðinn.
Lágmarks leigutími eru þrír mánuðir og miðast upphaf leigu við þann dag sem sem bílstóll er pantaður.
Leigusamningi er sagt upp með því að skila inn stólnum.
Uppsögn tekur gildi strax.
Mjög mikilvægt er að stóllinn sé rétt festur í bílinn og barnið rétt fest í stólinn. Við mælum með því að þú sækir Silver Cross appið sem sýnir mjög ítarlega hvernig nota á stólinn rétt.
Hægt er að lesa skilmála leigusamnings á bilstolaleigan.is/skilmalar
Til að hefja leigu skráir leigjandi sig í mánaðarlegar skuldfærslur á kreditkort sitt.
Einungis er tekið við VISA eða Mastercard kreditkortum.
Fyrsta greiðslan fer fram við afhendingu stólsins í versluninni Móðurást.
Mánuði síðast hefjast mánaðarlegar skuldfærslur af kreditkorti.
Þegar stól er skilað skal vera búið að þrífa stólinn. Fyrir ílla þrifinn stól er rukkað 5.000 kr þrifagjald.
Einnig ber að skila öllum aukahlutum sem fylgjdu með stólnum eins og beltispúðum og innleggjum.
Enginn kostnaður lendir á þér við þetta.
1. Hafðu samband við þitt tryggingafélag og láttu vita að þú hafir verið með barnabílstól í bílnum.
2 Hafðu samband við okkur leiga@bilstolaleigan.is til að skipta stólnum út.
Við sjáum um rest í samskiptum við þitt tryggingafélag.
Til að uppfæra kortnúmer smelltu HÉR